Færslur: 2008 Febrúar

24.02.2008 15:24

Útgáfutónleikar Coral á fimmtudaginn



Íslenska rokksveitin Coral fagnar útgáfu sinnar fyrstu breiðskífu, "The Perpetual Motion Picture" með tónleikum á Organ næstkomandi fimmtudag (28. febrúar). Platan var tekin upp að mestu í Gróðurhúsi Valgeirs Sigurðssonar (Björk, Bonnie "Prince" Billy, CocoRosie ofl.) og hefur hlotið jákvæðar viðtökur íslenskra rokkunnenda. Á Organ mun hljómsveitin spila breiðskífuna í heild sinni og einnig nokkur ný lög. Tónleikarnir hefjast uppúr 21:00. Aðgangur er ókeypis. Takmarkalaust húllumhæ.

www.myspace.com/coralspace


Umfjallanir um "The Perpetual Motion Picture":


"Gott grúv. . .fallegar melódíur. . .þungt og drullugt. . .sing-along kaflar. . .allir ættu að finna sér eitthvað sem svalar"
**** / Rjóminn.is

"Þetta er rokkað popp sem er skemmtilega mikið undir áhrifum frá öllu mögulegu"
65% / Monitor

"Ágætt"
*** / HÞJ Morgunblaðið

23.02.2008 12:39

Ný video

Nú er ég búinn að setja inn ný video - farið yfir í "Myndbönd" dálkinn til að skoða.  Hægrismellið og gerið "Save Target As"

14.02.2008 19:19

Fyrirhuguð uppistandsferð



Í lok þessa mánaðar mun ég fara í uppistandsferð um Holland og Belgíu.  Fer 28. og kem heim 9.mars, kem fram öll kvöld frá 28.febrúar til 8.mars.  Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt og góð reynsla.  Hollendingar og Belgar eru auðvitað þjóðir sem hafa almennt mjög góða tungumálafærni og eru góðir í ensku.  Þeir hafa víst mjög gaman af því að gera grín að og atast í hvorum öðrum líka, svipað og margar aðrar nágrannaþjóðir. 

    Flettingar í dag: 23
    Gestir í dag: 10
    Flettingar í gær: 95
    Gestir í gær: 29
    Samtals flettingar: 139789
    Samtals gestir: 55966
    Tölur uppfærðar: 8.2.2012 06:43:32