Færslur: 2008 Apríl

23.04.2008 23:16

Skemmd vara bolir til sölu !

Skemmd vara bolirnir eru komnir í sölu í Dogma búðunum og á dogma.is.  Þeir kosta bara 2000 kall og allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til UNICEF - barnahjálpar Sameinuðu þjóðana.

Smellið hér til að skoða / kaupa





13.04.2008 14:09

Akureyri

Síðasta miðvikudag fór ég á Akureyri til að vera með uppistand í MA og það var þrælgaman.  Síðan daginn eftir skoðaði ég bæinn soldið og það er nú bara skömm að því hvað Reykjavík er ljót miðað við Akureyri, sérstaklega hvað Laugavegurinn er slubbulegur.

Krakkar í leikfélaginu í MA náðu annars að vinna keppni milli menntaskólanna í spunaleiklist nýlega og voru að hita upp fyrir mig.  MH hefur víst unnið þessa kepnni frá því hún var haldin þangað til núna, sem kemur ekki að óvart því MH er alltaf með mikið af sterku leiklistarfólki.  MA krakkarnir eru síðan líklega að fara áfram í spunakeppni í Austurríki.  Ég var soldið í svona spunaleiklist í Montreal, en það var ekkert þannig í boði sem ég vissi af þegar ég flutti aftur hingað.  Ég vona að þetta sé að fara að aukast hérna á Íslandi, því spunaleiklist getur verið mjög góð skemmtun.  Í Kanada eru til dæmis spunalið sem koma reglulega fram á uppistandsklúbbum þar og eru með atriði.  Góð þannig lið geta vel verið jafn skemmtileg að horfa á eins og góðir uppistandarar.

13.04.2008 14:05

Kunta video

Nú er nýtt video komið á síðuna, frá því þegar ég fór og heimsótti bar í Montreal sem heitir Kunta.  Starfsmenn barsins voru auðvitað grunlausir um merkingu orðsis á íslensku og ég spilaði auðvitað botnlaust á það.  Þetta video er tekið í október 2006, en ég fann þennan bar fyrst í Montreal einhverntíman árið 2005 og fylltist strax óstjórnlegri gleði yfir þeim fundi.
    Flettingar í dag: 23
    Gestir í dag: 10
    Flettingar í gær: 95
    Gestir í gær: 29
    Samtals flettingar: 139789
    Samtals gestir: 55966
    Tölur uppfærðar: 8.2.2012 06:43:32