Færslur: 2008 Ágúst
30.08.2008 19:15
Sveinn Waage í næsta þætti
Í síðasta þætti töluðum við um námsfög í grunnskólum og fórum síðan aðeins út af málefninu yfir í áfengi. Hlustendum var heitt í hamsi og einn hringdi inn til að kalla okkur Gunna jólasveina. Jólasveinar eru nú yfirleitt góðir hélt ég samt, gefa gjafir og þannig, en kannski var hann að tala um gölu jólasveinana, þessa vondu sem Grýla og Leppalúði áttu.
Hinrik Ólafsson, leikari kom og sagði okkur frá profilm.is, leik sýnum í The Viking Sagas og hinum ýmsu leikritum.
Í næsta þætti ætlum við að halda áfram með umræðu síðasta þáttar, enda varla hálfnaðir þegar við urðum að hætta. Í seinni partinum kemur grínistinn Sveinn Waage síðan til okkar í spjall.
Þið getið annars sótt þættina á Hinneinisanni.net

27.08.2008 12:49
Hinn eini sanni þættirnir
Þá eru þættirnir kominir á fullt. Þið getið farið á hinneinisanni.net til að sækja þættina og skoða upplýsingar um þáttinn.
Flestir þættir eru þannig að við Gunni tökum eitthvert málefni fyrir sem okkur finnst áhugavert og ræðum í fyrri partinum og tökum við símtölum hlustenda sem vilja koma með innlegg í umræðuna. Seinni parturinn er síðan viðtal við einhvern áhugaverðan einstakling, oftast skemmikraft af einhverri tegund.
Í þættinum á morgun verður Hinrik Ólafsson, leikari í viðtali hjá okkur, en fyrst munum við velta fyrir okkur ýmsum námsfögum í skólakerfinu á Íslandi. Annars er verið að bóka viðtöl næstu þátta og verða þau negld niður á næstunni. Helga Braga, leikkona mun meðal annars koma til okkar í lok september.

09.08.2008 12:46
Þátturinn kominn á netið

Þá er fyrsti þátturinn af "Hinn eini sanni" kominn í netið í 2 hlutum. Síðan má í framtíðinni nálgast þættina undir MP3 hérna í valmyndinni efst.
Fyrri hluti
Seinni hluti
07.08.2008 17:46
Fyrsti þátturinn búinn
Þá er fyrsti þátturinn af "Hinn eini sanni" búinn. Þorsteinn Guðmundsson mætti til okkar og sagði okkur frá ferli sínum í Fóstbræðrum, Svalbarða og uppistandi, leik sinn í "Maður eins og ég" og viðbrögðunum sem hann fékk við sketchinum "Einstæðingur tantrar köttinn sinn" - bara svo að fátt eitt sé nefnt.
Þarna fjölluðum við líka soldið um snillinginn hana Leoncie og lagið hennar "Enginn þríkantur hér". Hlustendur fengu að hringja inn og var stuðningur við Icy Spicy greinilega mikill. Einum hlustanda fannst reyndar brýnna að spila meira af kristilegri tónlist í útvarpinu, heldur en lög með Leoncie og fékk einu nettu Jesúpopps lagi skellt á fóninn fyrir erfiði sitt. Engu að síður var tónlist Leoncie áfram aðal mál þáttarins, en ég og Gunni spiluðum þarna í fyrsta sinn okkar útgáfu af "Enginn þríkantur hér" - sem heitir reyndar "Engin göngugrind hér". Okkar útgáfa er einmitt tillaga að því hvernig lagið gæti verið án þess að fá á sig neinn "klám" stimpil. Smellið á linkinn fyrir neðan til að hlusta.
Engin göngugrind hér - mp3

01.08.2008 23:15
Fyrsti þátturinn á fimmtudaginn
"Hinn eini sanni" byrjar á Útvarpi sögu næsta fimmtudag kl.13 og verður til kl.15
Gestur þáttarins verður Þorsteinn Guðmundsson, grínisti, en áður en hann mætir munum við ræða áhugavert málefni, sem ég vil ekki afhjúpa hvað er, þannig þið verðið að hlusta á þáttinn til að komast að því.
Meira um hvaða efni verður í þáttunum síðar.

Flettingar í dag: 23
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 95
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 139789
Samtals gestir: 55966
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 07:30:42