Færslur: 2008 Október
14.10.2008 20:01
Viðtalið við mig á BBC radio
11.10.2008 14:24
Viðtal við mig hjá BBC three counties radio
Hérna getið þið heyrt viðtal við mig á BBC three counties radio um kreppuna á Íslandi og vesenið með KB Banka í Englandi.
Þið þurfið RealPlayer til að hlusta og spóla 30 mínútur fram í þáttinn.
Smellið Hérna
09.10.2008 10:44
Hinn eini sanni felldur niður
Því miður hætti Gunni, sem var þáttastjórnandi með mér í þættinum Hinn eini sanni á Útvarpi Sögu og tæknimaður þáttarins, hjá Útvarpi Sögu í síðustu viku sem leiddi til þess að það er búið að fella þáttinn niður. Þetta þykir mér leiðinlegt því það var skemmtilegt að vera með þáttinn og við búnir að fá mjög mikið af góðum gestum. Margir sem höfðu gaman af þættinum spurðu mig af hverju það hefði ekki verið þáttur í síðustu viku.
Ég vil auðvitað halda áfram að vera með þátt þarna og mun skoða möguleikana á því. Þeir sem héldu upp á þáttinn mega endilega senda email á ak@utvarpsaga.is og láta hana vita af því eða lýsa yfir stuðningi við að ég fái aftur að vera með þátt.
Ég þakka þeim góðu gestum sem ég fékk í þáttinn: Þorsteini Guðmundssyni, Svavari Knúti Kristinssyni, Begga blinda, Hinriki Ólafssyni, Sveini Waage, Díönu Lind Monzon, Helgu Brögu Jónsdóttur og Tómasi Lemarquis, fyrir skemmtileg viðtöl.
Ég vil líka þakka þeim sem hringdu inn í þáttinn og létu í sér heyra. Það var mjög gaman að tala við ykkur og heyra það sem þið höfðuð að segja.

- Rökkvi

02.10.2008 14:32
Hinn eini sanni fellur niður í dag
Þátturinn minn "Hinn eini sanni" á Útvarpi Sögu féll því miður niður í dag vegna þess að Gunni, sem er með þáttinn með mér og er jafnframt tæknimaðurinn í þættinum, er frá. Ég biðst afsökunar á þessu.
Flettingar í dag: 23
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 95
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 139789
Samtals gestir: 55966
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 07:30:42