Færslur: 2010 Febrúar

22.02.2010 21:50

Aumingja ofsóknarfórnarlömbin

Frjálshyggjufélagið er nýbúið að senda frá sér ályktun um að farið sé að nota orðið "auðmaður" eins og eitthvað á við nasista og finnst eitthvað voðalega miklar ofsóknir vera í gangi, eins og sjá má hér: 
http://eyjan.is/blog/2010/02/21/frjalshyggjufelagid-ordid-"audmadur"-farid-ad-merkja-sama-og-gydingur-hja-nasistum/

Það merkilega við þetta er að Hannes Hólmsteinn, aðalklappstýra frjálshyggju á Íslandi, notaði einmitt sama hugtak þegar hann talaði um fólkið sem væri búið að vera að "ofsækja" hetjuna hans Davíð Oddsson, en eins og ég var meira að segja nýlega búinn að blogga um þá voru þetta orð Hannesar um val hans á manni ársins 2009: "Davíð Oddsson, að standa af sér hatursherferð jafnt vinstriforingja og auðmanna og þýja þeirra."  Sjá hér: 
http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/alitsgjafar-pressunnar-gera-upp-arid-2009-hver-er-einstaklingur-arsins-sem-er-ad-lida?page=2&offset=75

Nú þætti mér fróðlegt að vita hvort Frjálshyggjufélagið er tilbúið til að afneita Hannesi sem nornaveiðara.  En ég verð reyndar að viðurkenna að ég er hlutdrægur hvað þetta varðar.  Ég hef nefnilega lengi verið bitur út í Hannes, fyrir að vera margfalt betri uppistandari en ég, án þess að vera einu sinni að reyna, samanber videoið fyrir neðan:


17.02.2010 11:38

Ekki abbast upp á afa!

Afi gamli kennir illa gefnum undirmálsmanni smá mannasiði í strætó!

15.02.2010 21:58

Maður ársins 2009

Betra er seint en aldrei og ég ætla að velja mann ársins 2009 að mínu mati.  Ég sá að Hannes Hólmseinn valdi Davíð eins og vanalega, sem Hannes gerir reyndar alltaf (og mun sjálfsagt halda áfram að gera löngu eftir að Davíð fer undir græna torfu ef hann fær tækifæri til).  Semsagt ekki neitt nýtt hér á ferð, nema það að ég rak augun í ástæðuna fyrir því að Hannes valdi Davíð í þetta skiptið.  Hún var var fyrir "að standa af sér hatursherferð jafnt vinstriforingja og auðmanna og þýja þeirra."

Ég held þetta sé kjörin leið að velja mann ársins, það er að segja þann sem stendur af sér mesta mótlætið og með mestum stíl.  Ég hef því ákveðið að velja hann "Norm" hérna fyrir neðan, fyrir að standa af sér hatursherferð 13, 14 og 15 ára gelgjukrakka sem ofsóttu hann á youtube - og það með miklum tilþrifum!



    Flettingar í dag: 23
    Gestir í dag: 10
    Flettingar í gær: 95
    Gestir í gær: 29
    Samtals flettingar: 139789
    Samtals gestir: 55966
    Tölur uppfærðar: 8.2.2012 06:43:32