Færslur: 2010 Apríl

11.04.2010 10:18

Pínlegt atvik úr glímu hjá mér

Sem uppistandari er ég vanur því að tilgangurinn sé að láta áhorfendur hlæja.  Þegar ég hinsvegar tók þátt í brasilísku jiu jitsu glímukeppninni síðustu helgi og áhorfendur sprungu úr hlátri, var ekki laust við að ég skammaðist mín soldið.  (Myndin segir allt)


 

10.04.2010 19:48

Glímugeðveiki

Margir hafa eflaust séð fréttina í Fréttablaðinu í gær þar sem ég skoraði á Dóra DNA í brasilíska jiu jitsu glímu.  Það eru auðvitað viss vonbrigði að hann hafi ekki tekið áskoruninni, sérstaklega þar sem ég var búinn að gera eldklárt árásarplan um hvernig ég ætlaði að sigra glímuna.  Árásarherbragðið sem ég ætlaði að nota má einmitt sjá hérna fyrir neðan í videoinu (á 1:55 mín nákvæmlega): 

    Flettingar í dag: 23
    Gestir í dag: 10
    Flettingar í gær: 95
    Gestir í gær: 29
    Samtals flettingar: 139789
    Samtals gestir: 55966
    Tölur uppfærðar: 8.2.2012 07:09:30