24.02.2008 15:24

Útgáfutónleikar Coral á fimmtudaginn



Íslenska rokksveitin Coral fagnar útgáfu sinnar fyrstu breiðskífu, "The Perpetual Motion Picture" með tónleikum á Organ næstkomandi fimmtudag (28. febrúar). Platan var tekin upp að mestu í Gróðurhúsi Valgeirs Sigurðssonar (Björk, Bonnie "Prince" Billy, CocoRosie ofl.) og hefur hlotið jákvæðar viðtökur íslenskra rokkunnenda. Á Organ mun hljómsveitin spila breiðskífuna í heild sinni og einnig nokkur ný lög. Tónleikarnir hefjast uppúr 21:00. Aðgangur er ókeypis. Takmarkalaust húllumhæ.

www.myspace.com/coralspace


Umfjallanir um "The Perpetual Motion Picture":


"Gott grúv. . .fallegar melódíur. . .þungt og drullugt. . .sing-along kaflar. . .allir ættu að finna sér eitthvað sem svalar"
**** / Rjóminn.is

"Þetta er rokkað popp sem er skemmtilega mikið undir áhrifum frá öllu mögulegu"
65% / Monitor

"Ágætt"
*** / HÞJ Morgunblaðið

Flettingar í dag: 21
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 47
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 151073
Samtals gestir: 58829
Tölur uppfærðar: 21.5.2012 03:40:17