15.03.2008 14:02

Viðtal við mig eftir að ég tók uppistand.is aftur



Hérna er viðtal sem var tekið við mig í 30.oktbóber í fyrra, sem ætti að varpa ágætis ljósi á mig sem uppistandara.  Það hefur auðvitað verið mikið tal um mig sem grínista og persónu og lang best að fólk fái þær upplýsingar sem það þarf til að mynda sér einhverja skoðun á þeim málum.  Mjög margt í þessu viðtali er einmitt þveröfugt við það sem fólk heldur um mig.  Allir sem fíla mig, hata mig, eru að tala um mig á opinberum vettvangi, eða hafa almennt einhvern áhuga á uppistandi á Íslandi ættu að hlusta á það.

Takið sérstaklega eftir því, að þetta viðtal er tekið eftir að ég tók uppistand.is aftur og sleit samstarfi við þáverandi umboðsaðila mína, Odd Eystein Friðriksson og Netmiðla hf, en ég minnist ekkert á þá eða okkar samskipti.  Sumt fólk virðist nefnilega ekki trúa því að Fréttablaðið (Freyr Bjarnason hjá Fréttablaðinu nákvæmlega) hafi haft samband við mig um af hverju ég hafi slitið samstarfi og tekið síðuna aftur til mín (eitthvað sem ég sá enga ástæðu til að segja honum ekki úr því hann vildi vita það - og ekkert að því hjá honum að birta það heldur).  En það var einmitt greinin sem birtist í Fréttablaðinu í framhaldinu sem byrjaði allt fárið í kringum þetta.  Margir virðast halda að það hafi verið ég sem hafi hringt í Fréttablaðið með söguna.  Ef ég hefði sjálfur sóst eftir að fara með þetta í fjölmiðla, af hverju hefði ég ekki bara gert það í október, beint eftir að ég sleit samstarfinu - og meðal annars talað um það í þessu viðtali?  Fólk á auðvitað rétt á að vita þessa hluti ef það hefur einhvern áhuga á þessum málum og ég hef auðvitað rétt á að leiðrétta misskilning um mig sem getur verið mínu orðspori skaðlegur.

Ég mun síðar birta betri greinagerð nákvæmlega á mínum faglega ágreiningi við fyrrum umboðsaðila mína, enda ætti svona að snúast um faglega þætti, en ekki persónulegar árásir.  Helst ætti þetta auðvitað bara að snúast um frjálsan grín markað þar sem fólk getur skemmt þeim sem vilja láta það skemmta sér og ekkert röfl.  Vonandi verður það líka þannig í framtíðinni, en þegar svona heiftarleg umræða er búin að vera úti um allt í blöðum, bloggsíðum og öðrum fjölmiðlum - þar sem ýmsar ásakanir og órökstuddar/óupplýstar ásakanir hafa komið fram - ættu öll gögn málsins að vera til staðar fyrir fólk til að kynna sér.

Flettingar í dag: 23
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 95
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 139789
Samtals gestir: 55966
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 07:09:30