07.08.2008 17:46
Fyrsti þátturinn búinn
Þá er fyrsti þátturinn af "Hinn eini sanni" búinn. Þorsteinn Guðmundsson mætti til okkar og sagði okkur frá ferli sínum í Fóstbræðrum, Svalbarða og uppistandi, leik sinn í "Maður eins og ég" og viðbrögðunum sem hann fékk við sketchinum "Einstæðingur tantrar köttinn sinn" - bara svo að fátt eitt sé nefnt.
Þarna fjölluðum við líka soldið um snillinginn hana Leoncie og lagið hennar "Enginn þríkantur hér". Hlustendur fengu að hringja inn og var stuðningur við Icy Spicy greinilega mikill. Einum hlustanda fannst reyndar brýnna að spila meira af kristilegri tónlist í útvarpinu, heldur en lög með Leoncie og fékk einu nettu Jesúpopps lagi skellt á fóninn fyrir erfiði sitt. Engu að síður var tónlist Leoncie áfram aðal mál þáttarins, en ég og Gunni spiluðum þarna í fyrsta sinn okkar útgáfu af "Enginn þríkantur hér" - sem heitir reyndar "Engin göngugrind hér". Okkar útgáfa er einmitt tillaga að því hvernig lagið gæti verið án þess að fá á sig neinn "klám" stimpil. Smellið á linkinn fyrir neðan til að hlusta.
Engin göngugrind hér - mp3

Flettingar í dag: 28
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 47
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 151080
Samtals gestir: 58830
Tölur uppfærðar: 21.5.2012 04:03:23