27.08.2008 12:49

Hinn eini sanni þættirnir

Þá eru þættirnir kominir á fullt.  Þið getið farið á hinneinisanni.net til að sækja þættina og skoða upplýsingar um þáttinn.

Flestir þættir eru þannig að við Gunni tökum eitthvert málefni fyrir sem okkur finnst áhugavert og ræðum í fyrri partinum og tökum við símtölum hlustenda sem vilja koma með innlegg í umræðuna.  Seinni parturinn er síðan viðtal við einhvern áhugaverðan einstakling, oftast skemmikraft af einhverri tegund.

Í þættinum á morgun verður Hinrik Ólafsson, leikari í viðtali hjá okkur, en fyrst munum við velta fyrir okkur ýmsum námsfögum í skólakerfinu á Íslandi.  Annars er verið að bóka viðtöl næstu þátta og verða þau negld niður á næstunni.  Helga Braga, leikkona mun meðal annars koma til okkar í lok september.
Flettingar í dag: 23
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 95
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 139789
Samtals gestir: 55966
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 07:09:30