Blogg
15.2.2010
Maður ársins 2009
Betra er seint en aldrei og ég ætla að velja mann ársins 2009 að mínu mati. Ég sá að Hannes Hólmseinn valdi Davíð eins og vanalega, sem Hannes gerir reyndar alltaf (og mun sjálfsagt halda áfram að gera löngu eftir að Davíð fer undir græna torfu ef hann fær tækifæri til). Semsagt ekki neitt nýtt hér á ferð, nema það að ég rak augun í ástæðuna fyrir því að Hannes valdi Davíð í þetta skiptið. Hún var var fyrir "að standa af sér hatursherferð jafnt vinstriforingja og auðmanna og þýja þeirra."
Ég held þetta sé kjörin leið að velja mann ársins, það er að segja þann sem stendur af sér mesta mótlætið og með mestum stíl. Ég hef því ákveðið að velja hann "Norm" hérna fyrir neðan, fyrir að standa af sér hatursherferð 13, 14 og 15 ára gelgjukrakka sem ofsóttu hann á youtube - og það með miklum tilþrifum!
Flettingar í dag: 121
Gestir í dag: 64
Flettingar í gær: 119
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 85671
Samtals gestir: 35073
Tölur uppfærðar: 8.9.2010 17:38:22

