Færslur: 2012 Janúar

28.01.2012 17:58

Árið 2011, litið til baka

Það er gaman að líta aftur þegar árið er liðið og skoða hvað maður hefur gert.  Sem grínisti náði ég að gera merkilega margt á síðasta ári, miðað við það að eignast litla stelpu á árinu og eiga aðra fyrir sem varð 2ja ára á árinu líka.

Í ár var uppistandshópurinn Innrásarvíkingarnir stofnaður af mér og Begga Blinda og við vorum tókum túr um landið og komum fram í 15 byggðarfélögum á Íslandi.  Lokauppistandinu okkar í Reykjavík, þar sem ferðin byrjaði, var einmitt aflýst af því að Embla dóttir mín fæddist fyrr en við áttum von á, en hún er engu að síður heilbrigð og hraust, svo það var bara hið besta mál.

Ég gerði þónokkuð af því að skrifa á Sannleikurinn.com (sjá lista yfir greinarnar mínar hér) sem ég byrjaði að skrifa á í hittífyrra. Sannleikurinn er virkilega að vaxa og dafna og komin með mjög stóran lesendahóp á netinu.

Ég náði einnig að hálfna með 2 markmið í uppistandi í ár.  Fyrra markmiðið er að safna 1 milljón fyrir góð málefni með uppistandi og gríni, en ég náði einmitt 500.000 kr markinu í desember í fyrra.  Hitt er að vera með uppistand á öllum 5 málunum sem ég tala, en ég er núna kominn í 3, eftir að vera með fyrsta uppistandið mitt á sænsku síðasta nóvember.  Ég hef að sjálfsögðu áður komið fram á íslensku og ensku.

Það sem ég er samt listrænt ánægðastur með sem grínisti síðasta ár, hljóta að vera 2 teiknuð tónlistarmyndbönd, sem ég gerði í samstarfi við flash-teiknarann Kjartan Daníel Haraldsson.  Þetta voru lögin mín Kartöflugeymslan, sem kom fyrst á netið í mp3 formi árið 2004 og síðan Presturinn Páll, sem er nýtt lag sem kom út um leið og myndbandið. Kartöflugeymslan fékk yfir 18.000 áhorf á árinu og Presturinn Páll yfir 6.000

Presturinn Páll

Kartöflugeymslan
  • 1
Flettingar í dag: 28
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 47
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 151080
Samtals gestir: 58830
Tölur uppfærðar: 21.5.2012 04:03:23